![]()
Það var á haustmánuðum á því herrans ári 2009 sem netheimar bergmáluðu af þeim ótíðindum að gellir.cc væri niðri*. Þar sem vera kann að örfáar illa upplýstar hræður hafi ekki heyrt af þessum hornstein veraldarvefsins er rétt að rekja sögu hans stuttlega. Hún hefst í febrúar árið 2002; öldin er rúmlega árs gömul, íslenska þjóðin er sem óðast að netvæðast, og nokkrir vinnufélagar hjá einu helsta tölvuþjónustufyrirtæki landsins finna hjá sér þörf fyrir að láta ljós sitt skína á nýgræðingana. Til að þjóna hinni yfirþyrmandi eftirspurn sem óhjákvæmilega myndi verða eftir gullkornum þessara meistara var sett saman sannkölluð ofurtölva (sjá mynd). Til að vísa á þetta tækniundur var skráð lénið gellir.cc, en það orð er upprunnið sem tillaga að nýyrði yfir þann hlut sem við í dag þekkjum sem hátalara eða gjallarhorn, og þótti því eiga sérlega vel við framanskráð framtak. Vinnuveitandinn, EJS, lagði svo til nauðsynlega hýsingaraðstöðu og bandbreidd, og upphófst þar með mikið framfaratímabil. Ekki er meiningin að rekja hér í smáatriðum öll þau afrek sem unnin voru á vegum Gellis á upplýsingahraðbrautinni, enda væri slíkur listi ómælanlegur. Látum nægja að nefna að sigurgangan var viðstöðulaus í meira en hálfan áratug (sem er, eins og allir vita, hálf eilífð í tölvuheiminum). Á þessum tíma hurfu hinsvegar margir aðstandenda Gellis til annarra starfa, og þó aðrir bættust við var þannig komið um mitt ár 2008 að flestir þeir sem nýttu sér þennan vettvang störfuðu ekki lengur hjá EJS. Fór það því að heyrast að Gellir væri eins og hver annar botnlangi; fyrirtækinu gagnslaus og líklegur til að drep gæti hlaupið í hann. Þetta var náttúrlega ekki nema alveg rétt, og hófust því aðstandendur Gellis því handa um að koma honum í aðra vist. Sökum anna dróst það þó, og því endaði það með því að slökkt var á Gelli. Rétt er að taka fram að þegar það gerðist voru allir virkir notendur Gellis hættir störfum hjá EJS, svo ekki var nema von að mönnum þætti skepnan óþörf. Liðu svo nokkrir mánuðir að veraldarvefurinn var Gellislaus, og verður að teljast líklegt að það hafi ekki verið minna niðurdrepandi en önnur óáran sem gekk yfir á sama tíma. En 19. mars árið 2010 birti af nýrri dögun; gellir.cc var aftur kominn á kreik. Sem fyrr er níðst á vinnuveitanda aðstandanda, í þetta skiptið Tölvuvinnslunni. Það er enn sem komið er aðeins einn af fyrri aðstandendum sem á þar efni; Kári Össurarson. Eru aðrir úr þeim hóp hvattir til að hafa samband við webmaster@gellir.cc.
Upprunalegir aðstandendur Gellis voru:
Bjarki Þorláksson
Hrannar Már Sigrúnarson
Jón Bjarni Björnsson
Kári Össurarson
Kristján Óli Sverrisson
Seinna bættust fleiri við. Einhverja vantar hugsanlega á þennan lista, en þeir sem ég veit um voru:
Arnar Ægisson
Birna Hauksdóttir
Bjarki Traustason
Brynjar Sigurðsson
Einar Jósepsson
Halldór Grétar Einarsson
Helga Óladóttir
Helgi Árnason
Hörður Már Gestsson
Marteinn Þór Sigurðarson
Pétur Árnason
Sigurgeir Kristjánsson
Þorgils Björgvinsson
* Ekki er með öllu óhugsandi að lítils háttar ýkjur á áhrifum Gellis hafi slæðst inn í þennan texta. Verður hann því að teljast með öllu ábyrgðarlaus.